Presidential
22 BYSSUR | 33 BYSSUR | 39 BYSSUR
Það má með vissu segja að Presidential sé rollsinn frá Liberty Safe og gerast því byssuskápar varla öflugri né glæsilegri. Skápurinn kemur í þremur stærðum og slagar minnsta týpan í hálft tonn. Enginn skápur úr smiðju Liberty Safe býr yfir þykkara stáli en Presidential og er hann eldtefjandi í hvorki meira né minna en 150 mínútur í 650°C.
Presidential er útbúinn einstöku fimm arma handfangi, skartgripuskúffu, fallegum skreytingum, hreyfiskynjara fyrir ljós og til þess að setja punktinn yfir i-ið koma valdir litir með 24K húðuðum talnalás. Skápurinn er skráður fyrir 22 til 39 byssum eftir stærð.
Byssuskápurinn kemur útbúinn „dual flex“ hillukerfi þar sem hægt er að raða lengri byssum í vinstri og hægri hólf eða hillur í annað hvort þeirra. Hægt er að stilla hæð hillanna á auðveldan máta.
Presidential er fáanlegur með 24K gullhúðuðum talnalás eða baklýstum raflás og er hægt að velja úr 24 mismunandi litum.
Upplýsingar
Renndu fingrinum til vinstri fyrir meiri upplýsingar
Presidential 25 | Presidential 40 | Presidential 50 | |
Skráður fjöldi skotvopna | 22 | 33 | 39 |
Hæð x breidd x dýpt | 154 x 76 x 72 | 169 x 91 x 82 | 184 x 107 x 81 |
Þyngd | 463 kg | 514 kg | 719 kg |
Fjöldi lásflipa | 12 | 16 | 18 |
Þykkt hurðar | 14 cm | 14 cm | 14 cm |
Þykkt veggja | 4,5 mm | 4,5 mm | 4,5 mm |
Þykkt lásflipa | 12,7 mm | 12,7 mm | 12,7 mm |
Eldtefjandi | 150 mín. í 650°c | 150 mín. í 650°c | 150 mín. í 650°c |
Utanverður lás | Talnalás innifalinn | Talnalás innifalinn | Talnalás innifalinn |
Nánari upplýsingar um skápinn má nálgast á vefsíðu Liberty Safe. |
Litir í boði






Fleiri litir eru fáanlegir en þeir sem eru sýndir hér að ofan. Sjá á vef Liberty Safe.
Presidential 25
Presidential 40
Presidential 50
Byssuskáparnir frá Liberty Safe eru þekktir um allan heim fyrir gæði, öryggi og áreiðanleika, og hefur fyrirtækið framleitt yfir tvær milljónir skápa frá árinu 1988. Liberty Safe framleiðir margar mismunandi línur af byssuskápum og koma þeir flestir í þremur stærðum. Öllum byssuskápum má breyta og hanna eftir þínu höfði en þeir byggja allir á hinum sama grunni: öryggi skiptir máli.