Lincoln
24 BYSSUR | 35 BYSSUR | 41 BYSSUR
Lincoln er byssuskápur sem myndi setja svip á hvaða stofu sem er. Hann er glæsilegur og sígildur í senn og sker sig frá þeim týpum sem á undan honum koma að því leitinu til að hann kemur með fimm arma handfangi.
Skápurinn er útbúinn 10 til 15 lásflipum/kólfum eftir stærð og er hver þeirra 10 mm á þykkt og er hann skráður fyrir 24 til 41 byssum eftir stærð. Hann eldtefjandi í 90 mínútur í 650°C og þá kemur hann útbúinn LED lýsingu og skartgripaskúffu.
Byssuskápurinn kemur útbúinn „dual flex“ hillukerfi þar sem hægt er að raða lengri byssum í vinstri og hægri hólf eða hillur í annað hvort þeirra. Hægt er að stilla hæð hillanna á auðveldan máta.
Lincoln er fáanlegur með talnalás eða baklýstum raflás og er hægt að velja úr 24 mismunandi litum.
Upplýsingar
Renndu fingrinum til vinstri fyrir meiri upplýsingar
Lincoln 25 | Lincoln 40 | Lincoln 50 | |
Skráður fjöldi skotvopna | 24 | 35 | 41 |
Hæð x breidd x dýpt | 154 x 76 x 74 | 169 x 91 x 81 | 184 x 106 x 81 |
Þyngd | 332 kg | 433 kg | 522 kg |
Fjöldi lásflipa | 10 | 13 | 15 |
Þykkt hurðar | 11 cm | 11 cm | 11 cm |
Þykkt veggja | 3 mm | 3 mm | 3 mm |
Þykkt lásflipa | 10 mm | 10 mm | 10 mm |
Eldtefjandi | 90 mín. í 650°c | 90 mín. í 650°c | 90 mín. í 650°c |
Utanverður lás | Talnalás innifalinn | Talnalás innifalinn | Talnalás innifalinn |
Nánari upplýsingar um skápinn má nálgast á vefsíðu Liberty Safe. |
Litir í boði






Fleiri litir eru fáanlegir en þeir sem eru sýndir hér að ofan. Sjá á vef Liberty Safe.
Lincoln 25
Lincoln 40
Lincoln 50
Byssuskáparnir frá Liberty Safe eru þekktir um allan heim fyrir gæði, öryggi og áreiðanleika, og hefur fyrirtækið framleitt yfir tvær milljónir skápa frá árinu 1988. Liberty Safe framleiðir margar mismunandi línur af byssuskápum og koma þeir flestir í þremur stærðum. Öllum byssuskápum má breyta og hanna eftir þínu höfði en þeir byggja allir á hinum sama grunni: öryggi skiptir máli.