Colonial
25 BYSSUR | 30 BYSSUR | 64 BYSSUR
Colonial er virkilega traustur og vandaður skápur frá Liberty Safe. Skápurinn er skráður fyrir 25 til 64 byssum eftir stærð og er hann eldtefjandi í 60 mínútur í 650°C.
Byssuskápurinn kemur útbúinn „dual flex“ hillukerfi þar sem hægt er að raða lengri byssum í vinstri og hægri hólf eða hillur í annað hvort þeirra. Hægt er að stilla hæð hillanna á auðveldan máta.
Colonial er fáanlegur með talnalás eða baklýstum raflás og er hægt að velja úr 10 mismunandi litum á skápnum.
Upplýsingar
Renndu fingrinum til vinstri fyrir meiri upplýsingar
Colonial 23 | Colonial 30 | Colonial 50 | |
Skráður fjöldi skotvopna | 25 | 30 | 64 |
Hæð x breidd x dýpt | 154 x 76 x 67 | 154 x 91 x 67 | 184 x 91 x 81 |
Þyngd | 279 kg | 313 kg | 454 kg |
Fjöldi lásflipa | 8 | 8 | 10 |
Þykkt hurðar | 11 cm | 11 cm | 11 cm |
Þykkt veggja | 2.8 mm | 2.8 mm | 2.8 mm |
Þykkt lásflipa | 6 mm | 6 mm | 6 mm |
Eldtefjandi | 60 mín. í 650°c | 60 mín. í 650°c | 60 mín. í 650°c |
Utanverður lás | Talnalás eða raflás | Talnalás eða raflás | Talnalás eða raflás |
Nánari upplýsingar um skápinn má nálgast á vefsíðu Liberty Safe. |
Litir í boði












Fleiri litir eru fáanlegir en þeir sem eru sýndir hér að ofan. Sjá á vef Liberty Safe.
Colonial 23
Colonial 30
Colonial 50
Byssuskáparnir frá Liberty Safe eru þekktir um allan heim fyrir gæði, öryggi og áreiðanleika, og hefur fyrirtækið framleitt yfir tvær milljónir skápa frá árinu 1988. Liberty Safe framleiðir margar mismunandi línur af byssuskápum og koma þeir flestir í þremur stærðum. Öllum byssuskápum má breyta og hanna eftir þínu höfði en þeir byggja allir á hinum sama grunni: öryggi skiptir máli.